1 Samúelsbók Chapter 22

For English

Read 1 Samúelsbók Chapter 22 Online

Read 1 Samúelsbók Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Samúelsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Samúelsbók 22

Kafli 22

1. Davíð fór þaðan og komst undan í Adúllamhelli. Og er bræður hans og allt hús föður hans fréttu það, komu þeir þangað til hans.

2. Og allir nauðstaddir menn söfnuðust til hans og allir þeir, sem komnir voru í skuldir, svo og allir þeir, er óánægðir voru, og gjörðist hann höfðingi þeirra. Voru nú með honum um fjögur hundruð manns.

3. Davíð fór þaðan til Mispe í Móab og sagði við Móabskonung: "Leyf föður mínum og móður minni að vera hér hjá yður, uns ég fæ að vita, hvað Guð gjörir við mig."

4. Síðan skildi hann þau eftir hjá Móabskonungi, og þau voru hjá honum meðan Davíð var í virkinu.

5. Og Gað spámaður sagði við Davíð: "Þú skalt ekki vera kyrr í virkinu. Haf þig á braut og far til Júda." Þá fór Davíð af stað og kom í Heretskóg.

6. Nú fréttir Sál, að Davíð sé fundinn og þeir menn, sem með honum voru. Sál sat í Gíbeu undir tamarisktrénu á hæðinni og hafði spjót í hendi, og allir þjónar hans stóðu umhverfis hann.

7. Þá mælti Sál við þjóna sína, sem stóðu umhverfis hann: "Heyrið, þér Benjamínítar! Ætli Ísaísonur gefi yður öllum akra og víngarða og gjöri yður alla að hersveitarforingjum og hundraðshöfðingjum?

8. Þér hafið allir gjört samsæri á móti mér, og enginn sagði mér frá því, þegar sonur minn gjörði bandalag við Ísaíson, og enginn yðar hefir kennt í brjósti um mig og sagt mér frá því, að sonur minn hefir eflt þegn minn til fjandskapar í móti mér, eins og nú er fram komið."

9. Þá tók Dóeg Edómíti til máls, – en hann stóð hjá þjónum Sáls – og mælti: "Ég sá Ísaíson koma til Nób, til Ahímeleks Ahítúbssonar,

10. og gekk hann til frétta við Drottin fyrir hann. Hann gaf honum og vistir, og sverð Golíats Filista fékk hann honum."

11. Þá sendi konungur eftir Ahímelek presti Ahítúbssyni og öllu frændliði hans, prestunum í Nób, og þeir komu allir á konungs fund.

12. Þá mælti Sál: "Heyr þú, Ahítúbsson!" Hann svaraði: "Hér er ég, herra minn!"

13. Sál mælti til hans: "Hví hafið þið gjört samsæri í móti mér, þú og Ísaíson, þar sem þú fékkst honum brauð og sverð og gekkst til frétta við Guð fyrir hann, svo að hann gæti risið til fjandskapar í gegn mér, eins og nú er fram komið?"

14. Ahímelek svaraði konungi og mælti: "Hver er svo trúr sem Davíð meðal allra þjóna þinna, tengdasonur konungsins, foringi lífvarðar þíns og mikils metinn í húsi þínu?

15. Er þetta þá í fyrsta sinni, sem ég geng til frétta við Guð fyrir hann? Fjarri fer því. Konungur má eigi gefa þjóni sínum og öllu frændliði mínu sök á þessu, því að þjónn þinn vissi alls ekki neitt um þetta."

16. En konungur mælti: "Þú skalt lífið láta, Ahímelek, þú og allt frændlið þitt."

17. Og konungur mælti til varðmannanna, sem hjá honum stóðu: "Komið hingað og deyðið presta Drottins, því að einnig þeir hafa hjálpað Davíð. Og þótt þeir vissu, að hann var að flýja, þá létu þeir mig ekki vita það." En þjónar konungs vildu ekki leggja hendur á presta Drottins.

18. Þá sagði konungur við Dóeg: "Kom þú hingað og drep þú prestana." Og Dóeg Edómíti gekk þangað, og hann drap prestana og deyddi á þeim degi áttatíu og fimm menn, sem báru línhökul.

19. Og Nób, borg prestanna, eyddi hann með sverðseggjum; bæði karla og konur, börn og brjóstmylkinga, uxa, asna og sauði felldi hann með sverðseggjum.

20. Aðeins einn af sonum Ahímeleks Ahítúbssonar komst undan. Hann hét Abjatar og flýði til Davíðs og gekk í sveit með honum.

21. Og Abjatar sagði Davíð frá, að Sál hefði myrt presta Drottins.

22. Davíð sagði við Abjatar: "Ég vissi það þá þegar, úr því að Dóeg Edómíti var þar, að hann mundi segja Sál frá því. Ég á sök á lífláti allra ættmenna þinna.

23. Vertu hjá mér og óttast ekki, því að sá sem leitar eftir mínu lífi, leitar eftir þínu lífi. Hjá mér er þér óhætt."

About 1 Samúelsbók Chapter 22

Read 1 Samúelsbók Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Samúelsbók
Chapter: 22
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Samúelsbók Chapter 22 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Samúelsbók Chapter 22?

1 Samúelsbók Chapter 22 is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Samúelsbók Chapter 22 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Samuelsbok

  1. 1 Samúelsbók Chapter 25
  2. 1 Samúelsbók Chapter 23
  3. 1 Samúelsbók Chapter 5
  4. 1 Samúelsbók Chapter 29
  5. 1 Samúelsbók Chapter 20
  6. 1 Samúelsbók Chapter 19
  7. 1 Samúelsbók Chapter 7

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 1 Samúelsbók Chapter 31
  2. 2 Konungabók Chapter 15
  3. Sálmarnir Chapter 133
  4. Jobsbók Chapter 35
  5. 2 Kroníkubók Chapter 10
  6. Amos Chapter 5
  7. 1 Mósebók Chapter 19

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 41
  2. Esekíel Chapter 23
  3. Jósúabók Chapter 20
  4. Sálmarnir Chapter 144
  5. Esekíel Chapter 4
  6. Jósúabók Chapter 8
  7. Sálmarnir Chapter 15
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *