1 Samúelsbók Chapter 16

For English

Read 1 Samúelsbók Chapter 16 Online

Read 1 Samúelsbók Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Samúelsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Samúelsbók 16

Kafli 16

1. Drottinn sagði við Samúel: "Hversu lengi ætlar þú að vera sorgmæddur út af Sál, þar sem ég hefi þó hafnað honum og svipt hann konungdómi yfir Ísrael? Fyll þú horn þitt olíu og legg af stað; ég sendi þig til Ísaí Betlehemíta, því að ég hefi kjörið mér konung meðal sona hans."

2. Samúel svaraði: "Hversu má ég fara? Frétti Sál það, mun hann drepa mig." En Drottinn sagði: "Tak þú með þér kvígu og segðu: ,Ég er kominn til þess að færa Drottni fórn.'

3. Og bjóð þú Ísaí til fórnarmáltíðarinnar, og ég skal sjálfur láta þig vita, hvað þú átt að gjöra, og þú skalt smyrja mér þann, sem ég mun segja þér."

4. Samúel gjörði það, sem Drottinn sagði. Og er hann kom til Betlehem, gengu öldungar borgarinnar í móti honum hræddir í huga og sögðu: "Kemur þú góðu heilli?"

5. Hann svaraði: "Já, ég er kominn til þess að færa Drottni fórn. Helgið yður og komið með mér til fórnarmáltíðarinnar." Og hann helgaði Ísaí og sonu hans og bauð þeim til fórnarmáltíðarinnar.

6. En er þeir komu, sá Samúel Elíab og hugsaði: "Vissulega stendur hér frammi fyrir Drottni hans smurði."

7. En Drottinn sagði við Samúel: "Lít þú ekki á skapnað hans og háan vöxt því að ég hefi hafnað honum. Guð lítur ekki á það, sem mennirnir líta á. Mennirnir líta á útlitið, en Drottinn lítur á hjartað."

8. Þá kallaði Ísaí á Abínadab og leiddi hann fyrir Samúel. En hann mælti: "Ekki hefir Drottinn heldur kjörið þennan."

9. Þá leiddi Ísaí fram Samma. En Samúel mælti: "Ekki hefir Drottinn heldur kjörið þennan."

10. Þannig leiddi Ísaí fram sjö sonu sína fyrir Samúel, en Samúel sagði við Ísaí: "Engan af þessum hefir Drottinn kjörið."

11. Og Samúel sagði við Ísaí: "Eru þetta allir sveinarnir?" Hann svaraði: "Enn er hinn yngsti eftir, og sjá, hann gætir sauða." Samúel sagði við Ísaí: "Send eftir honum og lát sækja hann, því að vér setjumst ekki til borðs fyrr en hann er kominn hingað."

12. Þá sendi hann eftir honum og lét hann koma, en hann var rauðleitur, fagureygur og vel vaxinn. Og Drottinn sagði: "Statt þú upp, smyr hann, því að þessi er það."

13. Þá tók Samúel olíuhornið og smurði hann mitt á meðal bræðra hans. Og andi Drottins kom yfir Davíð upp frá þeim degi. En Samúel tók sig upp og fór til Rama.

14. Andi Drottins var vikinn frá Sál, en illur andi frá Drottni sturlaði hann.

15. Þá sögðu þjónar Sáls við hann: "Illur andi frá Guði sturlar þig.

16. Herra vor þarf ekki nema að skipa; þjónar þínir standa frammi fyrir þér og munu leita upp mann, sem kann að leika hörpu. Þá mun svo fara, að þegar hinn illi andi frá Guði kemur yfir þig, og hann leikur hörpuna hendi sinni, þá mun þér batna."

17. Og Sál sagði við þjóna sína: "Finnið mér mann, sem vel leikur á strengjahljóðfæri, og færið mér hann."

18. Þá svaraði einn af sveinunum og mælti: "Sjá, ég hefi séð son Ísaí Betlehemíta, sem kann að leika á strengjahljóðfæri og er hreystimenni og bardagamaður, vel máli farinn og vaxinn vel, og Drottinn er með honum."

19. Þá gjörði Sál menn til Ísaí og lét segja honum: "Sendu Davíð son þinn til mín, þann er sauðanna gætir."

20. Þá tók Ísaí tíu brauð, vínbelg og einn geithafur og sendi Sál með Davíð syni sínum.

21. Og Davíð kom til Sáls og þjónaði honum. Lagði Sál mikinn þokka á hann og gjörði hann að skjaldsveini sínum.

22. Þá sendi Sál til Ísaí og lét segja honum: "Lát þú Davíð ganga í þjónustu mína, því að hann fellur mér vel í geð."

23. Og jafnan þegar hinn illi andi frá Guði kom yfir Sál, þá tók Davíð hörpuna og lék hana hendi sinni. Þá bráði af Sál og honum batnaði, og hinn illi andi vék frá honum.

About 1 Samúelsbók Chapter 16

Read 1 Samúelsbók Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Samúelsbók
Chapter: 16
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Samúelsbók Chapter 16 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Samúelsbók Chapter 16?

1 Samúelsbók Chapter 16 is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Samúelsbók Chapter 16 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Samuelsbok

  1. 1 Samúelsbók Chapter 25
  2. 1 Samúelsbók Chapter 23
  3. 1 Samúelsbók Chapter 29
  4. 1 Samúelsbók Chapter 5
  5. 1 Samúelsbók Chapter 2
  6. 1 Samúelsbók Chapter 26
  7. 1 Samúelsbók Chapter 14

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Sálmarnir Chapter 138
  2. Esekíel Chapter 39
  3. 2 Kroníkubók Chapter 24
  4. Sálmarnir Chapter 39
  5. Sálmarnir Chapter 74
  6. Jónas Chapter 3
  7. Orðskviðirnir Chapter 22

Related Chapters & Readings

  1. 1 Konungabók Chapter 4
  2. 3 Mósebók Chapter 5
  3. Esterarbók Chapter 5
  4. Sálmarnir Chapter 46
  5. Esekíel Chapter 18
  6. Matteus Chapter 27
  7. Jobsbók Chapter 6
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *