Read 1 Samúelsbók Chapter 11 Online
Read 1 Samúelsbók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Samúelsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
1 Samúelsbók 11
Kafli 11
1. Nahas Ammóníti fór og settist um Jabes í Gíleað. Þá sögðu allir Jabesbúar við Nahas: "Gjör þú sáttmála við oss, og munum vér þjóna þér."
2. Nahas Ammóníti svaraði þeim: "Með þeim kostum vil ég gjöra sáttmála við yður, að ég stingi út á yður öllum hægra augað og gjöri öllum Ísrael háðung með því."
3. Öldungarnir í Jabes sögðu við hann: "Gef oss sjö daga frest, og munum vér senda sendiboða um allt Ísraels land, og ef enginn þá hjálpar oss, munum vér gefast upp fyrir þér."
4. Þegar sendiboðarnir komu til Gíbeu Sáls og báru upp erindi sitt í áheyrn lýðsins, þá hóf allur lýðurinn upp raust sína og grét.
5. Og sjá, þá kom Sál á eftir nautunum utan af akri. Og Sál mælti: "Hvað ber til þess, að fólkið er að gráta?" Og þeir sögðu honum erindi Jabesmanna.
6. Þá kom andi Guðs yfir Sál, er hann heyrði þessi tíðindi, og varð hann reiður mjög.
7. Og hann tók tvo uxa og brytjaði þá og sendi stykkin um allt Ísraels land með sendiboðunum og lét þá orðsending fylgja: "Svo skal farið með naut hvers þess manns, er eigi fylgir Sál og Samúel í hernað." Þá kom ótti Drottins yfir fólkið, svo að þeir lögðu af stað sem einn maður.
8. Og hann kannaði liðið í Besek, og voru þá Ísraelsmenn þrjú hundruð þúsund og Júdamenn þrjátíu þúsund.
9. Og þeir sögðu við sendiboðana, sem komnir voru: "Segið svo mönnunum í Jabes í Gíleað: Á morgun um hádegisbil skal yður koma hjálp." Og sendimennirnir komu og sögðu Jabesbúum frá þessu, og urðu þeir glaðir við.
10. Og Jabesbúar sögðu við Nahas: "Á morgun munum vér gefast upp fyrir yður. Þá getið þér gjört við oss hvað sem yður gott þykir."
11. En morguninn eftir skipti Sál liðinu í þrjá flokka, og brutust þeir inn í herbúðirnar um morgunvökuna og felldu Ammóníta fram til hádegis. Og þeir, sem af komust, dreifðust víðsvegar, svo að ekki urðu eftir af þeim tveir saman.
12. Þá sagði fólkið við Samúel: "Hverjir voru það, sem sögðu: ,Á Sál að verða konungur yfir oss?' Framseljið þá menn, svo að vér getum drepið þá."
13. En Sál sagði: "Engan mann skal deyða á þessum degi, því að í dag hefir Drottinn veitt Ísrael sigur."
14. Samúel sagði við lýðinn: "Komið, vér skulum fara til Gilgal og endurnýja þar konungdóminn."
15. Þá fór allur lýðurinn til Gilgal og gjörði Sál þar að konungi frammi fyrir Drottni í Gilgal. Og þeir fórnuðu þar heillafórnum frammi fyrir Drottni, og Sál og allir Ísraelsmenn glöddu sig þar mikillega.
About 1 Samúelsbók Chapter 11
Read 1 Samúelsbók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 1 Samúelsbók
Chapter: 11
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 1 Samúelsbók Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 1 Samúelsbók Chapter 11?
1 Samúelsbók Chapter 11 is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 1 Samúelsbók Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 1 Samuelsbok
- 1 Samúelsbók Chapter 25
- 1 Samúelsbók Chapter 23
- 1 Samúelsbók Chapter 29
- 1 Samúelsbók Chapter 2
- 1 Samúelsbók Chapter 5
- 1 Samúelsbók Chapter 31
- 1 Samúelsbók Chapter 26
Explore More from Gamla Testamentið
- Jesaja Chapter 44
- 2 Samúelsbók Chapter 8
- Orðskviðirnir Chapter 23
- Esekíel Chapter 39
- 3 Mósebók Chapter 17
- 1 Mósebók Chapter 38
- 5 Mósebók Chapter 17