Daníel Chapter 1

For English

Read Daníel Chapter 1 Online

Read Daníel Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Daníel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Daníel and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Daníel 1

Kafli 1

1. Á þriðja ríkisári Jójakíms konungs í Júda kom Nebúkadnesar konungur í Babýlon til Jerúsalem og settist um hana.

2. Og Drottinn gaf Jójakím Júdakonung á vald hans og nokkuð af áhöldum Guðs húss, og hann flutti þau til Sínearlands í musteri guðs síns, og áhöldin flutti hann í fjárhirslu guðs síns.

3. Og konungur bauð Aspenasi hirðstjóra að velja meðal Ísraelsmanna, bæði af konungsættinni og af höfðingjunum,

4. sveina nokkra, er engin líkamslýti hefðu og væru fríðir sýnum, vel að sér í hvers konar vísindum, fróðir og vel viti bornir og hæfir til að þjóna í konungshöllinni, og kenna þeim bókmenntir og tungu Kaldea.

5. Og konungur ákvað þeim daglegan skammt frá konungsborði og af víni því, er hann sjálfur drakk, og bauð að uppala þá í þrjú ár, og að þeim liðnum skyldu þeir þjóna frammi fyrir konunginum.

6. Og meðal þeirra voru af Júdamönnum þeir Daníel, Hananja, Mísael og Asarja.

7. En hirðstjórinn breytti nöfnum þeirra og kallaði Daníel Beltsasar, Hananja Sadrak, Mísael Mesak og Asarja Abed-Negó.

8. En Daníel einsetti sér að saurga sig ekki á matnum frá konungsborði né á víni því, er konungur drakk, og beiddist þess af hirðstjóra, að hann þyrfti ekki að saurga sig.

9. Og Guð lét Daníel verða náðar og líknar auðið hjá hirðstjóranum.

10. En hirðstjórinn sagði við Daníel: "Ég er hræddur um að minn herra konungurinn, sem tiltekið hefir mat yðar og drykk, sjái yður fölari í bragði en aðra sveina á yðar aldri, og verðið þér svo þess valdandi, að ég fyrirgjöri lífi mínu við konunginn."

11. Þá sagði Daníel við tilsjónarmanninn, er hirðstjórinn hafði sett yfir þá Daníel, Hananja, Mísael og Asarja:

12. "Gjör tilraun við oss þjóna þína í tíu daga og lát gefa oss kálmeti að eta og vatn að drekka.

13. Skoða síðan yfirbragð vort og yfirbragð sveina þeirra, er eta við konungsborð, og gjör því næst við oss eftir því, sem þér þá líst á oss."

14. Og hann veitti þeim bón þessa og gjörði tilraun við þá í tíu daga.

15. Og að tíu dögum liðnum reyndust þeir fegurri ásýndum og feitari á hold en allir sveinarnir, sem átu við konungsborð.

16. Eftir það lét tilsjónarmaðurinn bera burt matinn og vínið, sem þeim hafði verið ætlað, og gaf þeim kálmeti.

17. Og þessum fjórum sveinum gaf Guð kunnáttu og skilning á alls konar rit og vísindi, en Daníel kunni og skyn á alls konar vitrunum og draumum.

18. Og er liðinn var sá tími, er konungur hafði tiltekið, að þá skyldi leiða á sinn fund, þá leiddi hirðstjórinn þá fyrir Nebúkadnesar.

19. Og konungur átti tal við þá, en eigi fannst neinn af þeim öllum slíkur sem þeir Daníel, Hananja, Mísael og Asarja, og gengu þeir í þjónustu konungs.

20. Og í öllum hlutum, sem viturleik og skilning þurfti við að hafa og konungur spurði þá um, reyndust þeir tíu sinnum fremri en allir spásagnamenn og særingamenn í öllu ríki hans.

21. Og Daníel dvaldist þar allt til fyrsta árs Kýrusar konungs.

About Daníel Chapter 1

Read Daníel Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Daníel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Daníel
Chapter: 1
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Daníel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Daníel Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Daníel Chapter 1?

Daníel Chapter 1 is part of the Book of Daníel in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Daníel Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Daniel

  1. Daniel Chapter 12
  2. Daniel Chapter 1
  3. Daniel Chapter 1
  4. Daniel Chapter 1
  5. Daniel Chapter 12
  6. Daniel Chapter 1
  7. Daniel Chapter 1

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 1 Mósebók Chapter 32
  2. Jósúabók Chapter 10
  3. 1 Mósebók Chapter 38
  4. 1 Kroníkubók Chapter 24
  5. Sálmarnir Chapter 117
  6. Jósúabók Chapter 22
  7. 2 Konungabók Chapter 1

Related Chapters & Readings

  1. 2 Mósebók Chapter 12
  2. Sálmarnir Chapter 135
  3. Sálmarnir Chapter 54
  4. Postulasagan Chapter 17
  5. 2 Pétursbréf Chapter 1
  6. Lúkas Chapter 7
  7. 1 Samúelsbók Chapter 16
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *