3 Mósebók Chapter 17

For English

Read 3 Mósebók Chapter 17 Online

Read 3 Mósebók Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 3 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 3 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

3 Mósebók 17

Kafli 17

1. Drottinn talaði við Móse og sagði:

2. "Tala þú við Aron og sonu hans og alla Ísraelsmenn og seg við þá: Þetta er það, sem Drottinn hefir boðið og sagt:

3. Hver sá af húsi Ísraels, sem slátrar nautgrip eða sauðkind eða geitsauð í herbúðunum, eða slátrar því fyrir utan herbúðirnar,

4. og leiðir það ekki að dyrum samfundatjaldsins til þess að færa Drottni það að fórnargjöf fyrir framan búð Drottins, sá maður skal vera blóðsekur. Hann hefir úthellt blóði, og sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni,

5. til þess að Ísraelsmenn færi sláturfórnir sínar, er þeir eru vanir að fórna á bersvæði, – að þeir færi þær prestinum að dyrum samfundatjaldsins Drottni til handa og fórni þeim í heillafórnir Drottni til handa.

6. Prestur skal stökkva blóðinu á altari Drottins við dyr samfundatjaldsins og brenna mörinn til þægilegs ilms fyrir Drottin.

7. Og þeir skulu eigi framar færa fórnir skógartröllunum, er þeir nú taka fram hjá með. Þetta skal vera þeim ævarandi lögmál frá kyni til kyns.

8. Og þú skalt segja við þá: Hver sá af húsi Ísraels eða af útlendum mönnum, er búa meðal þeirra, sem fórnar brennifórn eða sláturfórn

9. og færir hana ekki að dyrum samfundatjaldsins til þess að fórna Drottni henni, sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni.

10. Hver sá af húsi Ísraels og af útlendum mönnum, er búa meðal þeirra, sem neytir nokkurs blóðs, – gegn þeim manni, sem neytir blóðs, vil ég snúa augliti mínu og uppræta hann úr þjóð sinni.

11. Því að líf líkamans er í blóðinu, og ég hefi gefið yður það á altarið, til þess að með því sé friðþægt fyrir yður, því að blóðið friðþægir með lífinu.

12. Fyrir því hefi ég sagt við Ísraelsmenn: ,Enginn maður meðal yðar skal blóðs neyta, né heldur skal nokkur útlendingur, er býr meðal yðar, neyta blóðs.'

13. Og hver sá Ísraelsmanna og þeirra manna útlendra, er meðal yðar búa, sem veiðir villidýr eða fugl ætan, hann skal hella niður blóðinu og hylja það moldu.

14. Því að svo er um líf alls holds, að saman fer blóð og líf, og fyrir því hefi ég sagt við Ísraelsmenn: ,Þér skuluð ekki neyta blóðs úr nokkru holdi, því að líf sérhvers holds, það er blóð þess. Hver sá, er þess neytir, skal upprættur verða.'

15. Og hver sá, er etur sjálfdauða skepnu eða dýrrifna, hvort heldur er innborinn maður eða útlendur, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds. Þá er hann hreinn.

16. En þvoi hann þau ekki og laugi ekki hold sitt, þá bakar hann sér sekt."

About 3 Mósebók Chapter 17

Read 3 Mósebók Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 3 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 3 Mósebók
Chapter: 17
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 3 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 3 Mósebók Chapter 17 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 3 Mósebók Chapter 17?

3 Mósebók Chapter 17 is part of the Book of 3 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 3 Mósebók Chapter 17 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 3 Mosebok

  1. 3 Mósebók Chapter 22
  2. 3 Mósebók Chapter 10
  3. 3 Mósebók Chapter 15
  4. 3 Mósebók Chapter 24
  5. 3 Mósebók Chapter 7
  6. 3 Mósebók Chapter 5
  7. 3 Mósebók Chapter 4

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 5 Mósebók Chapter 3
  2. 2 Kroníkubók Chapter 15
  3. Jobsbók Chapter 6
  4. 1 Mósebók Chapter 40
  5. 2 Samúelsbók Chapter 9
  6. 1 Kroníkubók Chapter 27
  7. Jeremía Chapter 17

Related Chapters & Readings

  1. Postulasagan Chapter 12
  2. 1 Mósebók Chapter 37
  3. Opinberunarbókin Chapter 4
  4. Hósea Chapter 1
  5. Sálmarnir Chapter 44
  6. 1 Kroníkubók Chapter 15
  7. Jobsbók Chapter 20
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *