2 Samúelsbók Chapter 4

For English

Read 2 Samúelsbók Chapter 4 Online

Read 2 Samúelsbók Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Samúelsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Samúelsbók 4

Kafli 4

1. Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að Abner væri dauður í Hebron, féllust honum hendur, og allur Ísrael varð óttasleginn.

2. Ísbóset sonur Sáls hafði tvo menn hjá sér, foringja fyrir ránsflokkum. Hét annar þeirra Baana, en hinn Rekab. Þeir voru synir Rimmóns frá Beerót, af kynþætti Benjamíns, því að Beerót telst með Benjamín.

3. En Beerótbúar voru flúnir til Gittaím, og hafa þeir verið þar sem hjábýlingar fram á þennan dag.

4. Jónatan, sonur Sáls, átti son lama á báðum fótum. Hann var fimm vetra gamall, þegar fregnin kom um Sál og Jónatan frá Jesreel. Þá tók fóstra hans hann og flýði, en í ofboðinu, er hún flýði, féll hann og varð lami. Hann hét Mefíbóset.

5. Synir Rimmóns frá Beerót, þeir Rekab og Baana, lögðu af stað og komu, þá er heitast var dags, í hús Ísbósets. Hafði hann þá lagt sig um miðdegið.

6. En stúlkan, sem dyranna gætti, hafði verið að hreinsa hveiti, og hafði hana syfjað og var hún sofandi. Þeir Rekab og Baana bróðir hans læddust því inn.

7. Og er þeir komu inn í húsið, þá lá Ísbóset í hvílu sinni í svefnhúsi sínu. En þeir báru vopn á hann og unnu á honum og hjuggu af honum höfuðið. Því næst tóku þeir höfuð hans og héldu áfram alla nóttina veginn yfir Jórdandalinn.

8. Og þeir færðu Davíð í Hebron höfuðið af Ísbóset og mæltu við konunginn: "Hér er höfuð Ísbósets, sonar Sáls, óvinar þíns, sem sat um líf þitt. Drottinn hefir nú látið herra mínum, konunginum, verða hefndar auðið á Sál og niðjum hans."

9. Davíð svaraði Rekab og Baana bróður hans, þeim sonum Rimmóns frá Beerót, og mælti til þeirra: "Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er frelsað hefir líf mitt úr öllum nauðum:

10. Þann mann, sem færði mér tíðindin: ,Sjá, Sál er dauður!' og hugðist færa mér gleðitíðindi, hann lét ég handtaka og drepa í Siklag og galt honum þann veg sögulaunin.

11. Og þegar illir menn nú hafa myrt saklausan mann í hvílu sinni í hans eigin húsi, skyldi ég þá ekki miklu fremur krefjast blóðs hans af ykkar hendi og afmá ykkur af jörðinni?"

12. Síðan bauð Davíð sveinum sínum að drepa þá. Þeir gjörðu svo og hjuggu af þeim hendur og fætur og hengdu þá upp hjá tjörninni í Hebron. En höfuð Ísbósets tóku þeir og jörðuðu það í gröf Abners í Hebron.

About 2 Samúelsbók Chapter 4

Read 2 Samúelsbók Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Samúelsbók
Chapter: 4
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Samúelsbók Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Samúelsbók Chapter 4?

2 Samúelsbók Chapter 4 is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Samúelsbók Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Samuelsbok

  1. 2 Samúelsbók Chapter 3
  2. 2 Samúelsbók Chapter 22
  3. 2 Samúelsbók Chapter 20
  4. 2 Samúelsbók Chapter 13
  5. 2 Samúelsbók Chapter 12
  6. 2 Samúelsbók Chapter 11
  7. 2 Samúelsbók Chapter 5

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 1 Samúelsbók Chapter 2
  2. 3 Mósebók Chapter 2
  3. 2 Kroníkubók Chapter 16
  4. Dómarabókin Chapter 3
  5. 1 Mósebók Chapter 13
  6. Sálmarnir Chapter 41
  7. Sálmarnir Chapter 140

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 65
  2. Jósúabók Chapter 16
  3. Efesusbréfið Chapter 3
  4. Míka Chapter 7
  5. 1 Kroníkubók Chapter 22
  6. 1 Mósebók Chapter 33
  7. Postulasagan Chapter 21
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *