Read 3 Mósebók Chapter 24 Online
Read 3 Mósebók Chapter 24 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 3 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 3 Mósebók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
3 Mósebók 24
Kafli 24
1. Drottinn talaði við Móse og sagði:
2. "Bjóð þú Ísraelsmönnum að færa þér tæra olíu af steyttum olífuberjum til ljósastikunnar, svo að lampar verði ávallt settir upp.
3. Fyrir utan fortjald sáttmálsins í samfundatjaldinu skal Aron tilreiða þá frá kveldi til morguns frammi fyrir Drottni stöðuglega. Það er ævarandi lögmál fyrir yður frá kyni til kyns.
4. Hann skal raða lömpunum á gull-ljósastikuna frammi fyrir Drottni stöðuglega.
5. Þú skalt taka fínt mjöl og baka úr því tólf kökur. Skulu vera tveir tíundupartar úr efu í hverri köku.
6. Og þú skalt leggja þær í tvær raðir, sex í hvora röð, á gullborðið frammi fyrir Drottni.
7. Og þú skalt láta hjá hvorri röð hreina reykelsiskvoðu, og skal hún vera sem ilmhluti af brauðinu, eldfórn Drottni til handa.
8. Á hverjum hvíldardegi skal hann raða þessu frammi fyrir Drottni stöðuglega. Er það ævinlegur sáttmáli af hálfu Ísraelsmanna.
9. Skal Aron og synir hans fá það og eta það á helgum stað, því að það heyrir honum sem háhelgur hluti af eldfórnum Drottins eftir ævinlegu lögmáli."
10. Sonur ísraelskrar konu gekk út meðal Ísraelsmanna, en faðir hans var egypskur. Lenti þá sonur ísraelsku konunnar í deilu við ísraelskan mann í herbúðunum.
11. Og sonur ísraelsku konunnar lastmælti nafninu og formælti. Þeir leiddu hann fyrir Móse. En móðir hans hét Selómít Díbrísdóttir, af ættkvísl Dans.
12. Og þeir settu hann í varðhald, til þess að þeim kæmi úrskurður fyrir munn Drottins.
13. Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
14. "Leið þú lastmælandann út fyrir herbúðirnar, og allir þeir, er heyrt hafa, skulu leggja hendur sínar á höfuð honum, og því næst skal allur söfnuðurinn grýta hann.
15. Og þú skalt tala við Ísraelsmenn og segja: ,Hver sá, er formælir Guði sínum, bakar sér synd.
16. Og sá er lastmælir nafni Drottins, skal líflátinn verða. Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn.
17. Og ljósti einhver mann til bana, skal hann líflátinn verða.
18. Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, líf fyrir líf.
19. Og veiti maður náunga sínum áverka, þá skal honum gjört hið sama, sem hann hefir gjört:
20. Beinbrot fyrir beinbrot, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hinn sami áverki, er hann hefir veitt öðrum, skal honum veittur.
21. Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, en sá, er lýstur mann til bana, skal líflátinn.
22. Þér skuluð hafa ein lög, hvort heldur útlendur maður eða innborinn á í hlut, því að ég er Drottinn, Guð yðar.'"
23. Og Móse talaði við Ísraelsmenn, og þeir leiddu lastmælandann út fyrir herbúðirnar og lömdu hann grjóti. Og Ísraelsmenn gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
About 3 Mósebók Chapter 24
Read 3 Mósebók Chapter 24 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 3 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 3 Mósebók
Chapter: 24
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 3 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 3 Mósebók Chapter 24 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 3 Mósebók Chapter 24?
3 Mósebók Chapter 24 is part of the Book of 3 Mósebók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 3 Mósebók Chapter 24 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 3 Mosebok
- 3 Mósebók Chapter 22
- 3 Mósebók Chapter 10
- 3 Mósebók Chapter 15
- 3 Mósebók Chapter 7
- 3 Mósebók Chapter 5
- 3 Mósebók Chapter 4
- 3 Mósebók Chapter 21
Explore More from Gamla Testamentið
- Dómarabókin Chapter 13
- Sálmarnir Chapter 26
- 4 Mósebók Chapter 36
- 2 Mósebók Chapter 31
- Jeremía Chapter 16
- Ljóðaljóðin Chapter 7
- Sálmarnir Chapter 68