Read 2 Samúelsbók Chapter 5 Online
Read 2 Samúelsbók Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Samúelsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Samúelsbók 5
Kafli 5
1. Allar ættkvíslir Ísraels komu til Davíðs í Hebron og sögðu: "Sjá, vér erum hold þitt og bein!
2. Þegar um langa hríð, á meðan Sál var konungur yfir oss, hefir þú verið fyrir Ísrael, bæði þegar hann lagði af stað í stríð og þegar hann kom heim. Auk þess hefir Drottinn við þig sagt: ,Þú skalt vera hirðir þjóðar minnar Ísraels, og þú skalt vera höfðingi yfir Ísrael!'"
3. Allir öldungar Ísraels komu til konungsins í Hebron, og Davíð konungur gjörði við þá sáttmála í Hebron, frammi fyrir augliti Drottins, og þeir smurðu Davíð til konungs yfir Ísrael.
4. Þrjátíu ára gamall var Davíð, þá er hann varð konungur, og fjörutíu ár ríkti hann.
5. Í Hebron ríkti hann sjö ár og sex mánuði yfir Júda, og í Jerúsalem ríkti hann þrjátíu og þrjú ár yfir öllum Ísrael og Júda.
6. Konungur og menn hans fóru til Jerúsalem í móti Jebúsítum, sem bjuggu í því héraði. Jebúsítar sögðu við Davíð: "Þú munt eigi komast hér inn, heldur munu blindir menn og haltir reka þig burt." Með því áttu þeir við: "Davíð mun ekki komast hér inn."
7. En Davíð tók vígið Síon, það er Davíðsborg.
8. Davíð sagði á þeim degi: "Hver sem vill vinna sigur á Jebúsítum, skal fara um göngin til þess að komast að ,þeim höltu og blindu', sem Davíð hatar í sálu sinni." Þaðan er komið máltækið: "Blindir og haltir komast ekki inn í musterið."
9. Því næst settist Davíð að í víginu, og nefndi hann það Davíðsborg. Hann reisti og víggirðingar umhverfis, frá Milló og þaðan inn á við.
10. Og Davíð efldist meir og meir, og Drottinn, Guð allsherjar, var með honum.
11. Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, trésmiði og steinhöggvara, og reistu þeir höll handa Davíð.
12. Og Davíð kannaðist við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael og eflt konungsríki hans fyrir sakir þjóðar sinnar Ísraels.
13. Davíð tók sér enn hjákonur og konur í Jerúsalem, eftir að hann var farinn burt frá Hebron, og Davíð fæddust enn synir og dætur.
14. Þetta eru nöfn þeirra sona, sem honum fæddust í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon,
15. Jíbhar, Elísúa, Nefeg, Jafía,
16. Elísama, Eljada og Elífelet.
17. Þegar Filistar heyrðu að Davíð væri smurður til konungs yfir Ísrael, lögðu þeir af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann ofan í fjallvígið.
18. Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal.
19. Þá gekk Davíð til frétta við Drottin og sagði: "Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér?" Drottinn svaraði Davíð: "Far þú, því að ég mun vissulega gefa Filista í hendur þér."
20. Þá fór Davíð til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim og sagði: "Drottinn hefir skolað burt óvinum mínum fyrir mér, eins og þegar vatn ryður sér rás." Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím.
21. En þeir létu þar eftir skurðgoð sín, og Davíð og menn hans tóku þau.
22. Filistar komu aftur og dreifðu sér um Refaímdal.
23. Þá gekk Davíð til frétta við Drottin, og hann svaraði: "Far þú eigi í móti þeim. Far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undan bakatrjánum.
24. Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum bakatrjánna, þá skalt þú hraða þér, því að þá fer Drottinn fyrir þér til þess að ljósta her Filista."
25. Og Davíð gjörði eins og Drottinn bauð honum og vann sigur á Filistum frá Geba alla leið til Geser.
About 2 Samúelsbók Chapter 5
Read 2 Samúelsbók Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Samúelsbók
Chapter: 5
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Samúelsbók Chapter 5 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Samúelsbók Chapter 5?
2 Samúelsbók Chapter 5 is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Samúelsbók Chapter 5 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2 Samuelsbok
- 2 Samúelsbók Chapter 21
- 2 Samúelsbók Chapter 13
- 2 Samúelsbók Chapter 22
- 2 Samúelsbók Chapter 11
- 2 Samúelsbók Chapter 7
- 2 Samúelsbók Chapter 4
- 2 Samúelsbók Chapter 3
Explore More from Gamla Testamentið
- 2 Mósebók Chapter 10
- 2 Mósebók Chapter 31
- Esekíel Chapter 44
- Esekíel Chapter 21
- Hósea Chapter 2
- Esekíel Chapter 24
- 1 Samúelsbók Chapter 13